Sakamálaleikrit Útvarpsleikhússins
FIMMTUDAG 26. ÁGÚST KL. 22:15:
Haustmánaðarkvöld
eftir Friderich Dürrenmatt
íslensk þýðing: Ragnar Jóhannesson
Leikstjóri: Baldvin Halldórsson
Persónur og leikendur:
Rithöfundurinn: Þorsteinn Ö. Stephensen
Gesturinn: Indriði Waage
Einkaritarinn: Gísli Halldórsson
Gistihússtjórinn: Jón Aðils
Kynnir: Jón Múli Árnason
Hljóðvinnsla: Jón Sigbjörnsson
Verkið var frumflutt í Útvarpinu í ágústmánuði 1959. Var það fyrsta leikritið sem flutt var hér á landi eftir eitt helsta leikskáld Evrópu á síðari hluta síðustu aldar. Síðar áttu eftir rata á svið á Íslandi leikrit hans Eðlisfræðingarnir, Rómúlus mikli og síðast en ekki síst Sú gamla kemur í heimsökn, sem síðar hlaut nafnið Milljarðarmærin snýr aftur.