HARALDUR BJÖRNSSON & SESAR OG KLEOPATRA á Leikritakvöldi

 

Á leikritakvöldi útvarpsins laugardaginn 22. oktober verður á dagskrá þáttur úr þáttaröðinni "Þau stóðu í sviðsljósinu" kl. 19. Að þessu sinni fjallar Óskar Ingimarsson um Harald Björnsson leikara. Þátturinn er frá árinu 1976.

Að því loknu, eða um kl. 20, verður fluttur fyrri hluti leikritsins SESAR OG KLEOPATRA, eftir George Bernard Shaw í þýðingu Árna Guðnasonar og undir leikstjórn Helga Skúlasonar. Tónlist samdi Magnús Blöndal Jóhannesson.

Í titilhlutverkum: Þorsteinn Ö. Stephensen og Herdís Þorvaldsdóttir.

Aðrir leikendur: Lárus Pálsson, Gísli Halldórsson, Þorsteinn Gunnarsson, Steindór Hjörleifsson, Arndís Björnsdóttir, Haraldur Björnsson, Jón Aðils, Brynja Benediktsdóttir, Valur Gíslason, Jón Sigurbjörnsson, Guðmundur Pálsson, Erlingur Gíslason, Bessi Bjarnason og Helgi Skúlason.

Hljóðfæraleikarar: Jón Sigurðsson og Björn Guðjónsson.

Upptakan var frumflutt á jólum árið 1959


laugardagur 22. okt. 2011
« Til baka Deila

HLAÐVARP

HLEKKIR