BLÓÐBRULLUP & BRYNJÓLFUR JÓHANNESSON á Leikritakvöldi

 

Á leikritakvöldi útvarpsins laugardagskvöldið 15. október er fyrst á dagskrá kl. 19 þáttur úr þáttaröðinni "Þau stóðu í sviðsljósinu". Að þessu sinni fjallar Vigdís Finnbogadóttir um leikarann Brynjólf Jóhannesson, leikferil hans og líf.
Þátturinn var áður á dagskrá 1976.

Að loknu leikritinu, eða um kl. 20, hefst flutningur leikritsins BLÓÐBRULLUPS eftir spænska skáldið Federico García Lorca. Hér er á ferðinni sýning Þjóðleikhússins frá 1959, stytt og löguð að útvarpsflutningi.
Íslenska þýðingu gerði Hannes Sigfússon
Vögguþulu þýddi Magnús Ásgeirsson
Leikstjóri: Gísli Halldórsson

Persónur og leikendur:
Móðirin: Arndís Björnsdóttir
Brúðguminn: Valur Gústafsson
Brúðurin: Guðrún Ásmundsdóttir
Leonardo: Helgi Skúlason
Kona Leonardos: Helga Valtýsdóttir
Tengdamóðirin: Regína Þórðardóttir
Faðir brúðarinnar: Lárus Pálsson
Grannkona: Anna Guðmundsdóttir
Þjónustustúlka: Edda Kvaran
Máninn: Baldvin Halldórsson
Dauðinn: Herdís Þorvaldsdóttir
Viðarhöggsmenn: Bessi Bjarnason, Kristján Jónsson og Erlingur Gíslason.
Veislugestir: Bryndís Pétursdóttir, Vilborg Sveinbjarnardóttir, Svandís Jónsdóttir, Klemenz Jónsson, Guðjón Ingi Sigurðsson, Hulda Viktorsdóttir, Lára Einarsdóttir, Björn Þorgeirsson, Jóhann Guðmundsson og Sighvatur Jónasson.

Upptakan var frumflutt í útvarpinu árið 1961.


laugardagur 15. okt. 2011
« Til baka Deila

HLAÐVARP

HLEKKIR