Sunnudagana 23. og 30. október kl. 14:00
frumflytur Útvarpsleikhúsið ÁSTAND leikrit í tveim hlutum um ást í meinum eftir Ásdísi Thoroddsen
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson.
Leikstjóri: Ásdís Thoroddsen.
Vorið 1941. Unglingsstúlkan Guðrún kynnist breskum hermanni Bob í þann mund sem íslensk yfirvöld koma á bráðabirgðalögum sem banna samskipti ungmenna og setuliðsins og settur er á laggirnar ungmennadómstóll. Farið er með ástir Guðrúnar og Bobs sem glæpamál og metnaðargjarna skólastúlkan hrekst inn í örlagaþrungna atburðarás.
Í helstu hlutverkum:
Camille Marmié, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Þórir Sæmundsson, Erling Jóhannesson, Edda Arnljótsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Stefán Jónsson, Einar Aðalsteinsson, Atli Gunnarsson og Heiða Ólafsdóttir.
Auk þeirra: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Eggert Kaaber, Eggert Þorleifsson, Finnbogi Þorkell Jónsson, Grímkell Gollino, Helga Braga Jónsdóttir, Jón Stefán Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Ólafur S.K. Þorvaldz, Valur Freyr Einarsson, Viktor Már Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sigurður Skúlason, Stefán Bjarnason, Eggert Þorleifsson, Margrét Kaaber, Valur Freyr Einarsson og Þráinn Karlsson.
Útvarpsleikritið er samstarfsverkefni Gjólu ehf og Útvarpsleikhússins.
Menningarsjóður útvarpsstöðva styrkti verkefnið.