Í vetur mun Útvarpsleikhúsið frumflytja m.a. tvö metnaðarfull verkefni. Þetta er annars vegar leikritið ÁSTAND, útvarpsleikrit í tveimur hlutum, eftir Ásdísi Thoroddsen í leikstjórn höfundar og hljóðvinnslu Einars Sigurðssonar. Leikritið er framleitt af Gjólu ehf í samstarfi við Útvarpsleikhúsið. Menningarsjóður útvarpsstöðva styrkti verkefnið.
Vorið 1941. Unglingsstúlkan Guðrún kynnist breskum hermanni Bob í þann mund sem íslensk yfirvöld koma á bráðabirgðalögum sem banna samskipti ungmenna og setuliðsins og settur er á laggirnar ungmennadómstóll. Farið er með ástir Guðrúnar og Bobs sem glæpamál og metnaðargjarna skólastúlkan hrekst inn í örlagaþrungna atburðarás.
Yfir 30 leikarar fara með hlutverkin og þar á meðal eru: Camille Marmié, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Þórir Sæmundsson, Erling Jóhannesson, Edda Arnljótsdóttir, Þórey Sigþórsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Stefán Jónsson, Einar Aðalsteinsson, Atli Gunnarsson og Heiða Ólafsdóttir.
ÁSTAND verður flutt sunnudagana 23. og 30. október.
Hinsvegar er ný útvarpsleikgerð í þremur hlutum á EGILS SÖGU eftir Morten Cranner í íslenskri þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Þýðingar á bundnu máli eftir Þórarinn Eldjárn, frumsamin tónlist eftir Hildi Ingveldar Guðnadóttur, leikstjóri er Erling Jóhannesson og hljóðvinnslu annast Einar Sigurðsson. Menningarsjóður útvarpsstöðva styrkti verkefnið.
Nútímaleg útgáfa af þessari mögnuðu sögu um Egil Skallagrímsson, sem var eitt fornfrægasta skáld Íslendinga og um æsispennandi líf hans jafnt í Noregi sem á Íslandi.
Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Egils.
Hátt í 30 leikarar fara með hlutverkin og má þar nefna Margréti Vilhjálmsdóttur, Jóhann Sigurðarson, Arndísi Hrönn Egilsdóttur, Hjálmar Hjálmarsson og Magnús Jónsson.
EGILS SAGA verður flutt sunnudagana 22. janúar, 29. janúar og 5. febrúar.
Af öðrum frumfluttum verkum má nefna:
UNDANÞÁGUNEFNDIN eftir Gunnar Gunnarsson rithöfund og fréttamann. Leikstjóri er Erling Jóhannesson, tónlist er eftir Finn Karlsson, nemanda í tónsmíðum við LHÍ og koma hljóðfæraleikarar líka úr Listaháskólanum. Hljóðvinnslu annast Einar Sigurðsson
Í landi klíkuskapar, pólitískra bitlinga og frændhygli er Undanþágunefndin þýðingarmest allra nefnda. Undanþágunefndin - raunsætt leikrit um fáránlegt samfélag.
Leikendur eru: Birgitta Birgisdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Hannes Óli Ágústsson, Pétur Einarsson og Guðrún Ásmundsdóttir.
UNDANÞÁGUNEFNDIN verður flutt sunnudaginn 20. nóvember.
FJALLA-EYVINDUR eftir Jóhann Sigurjónsson í nýrri útvarpsleikgerð eftir Mörtu Nordal og leikstjórn hennar, verður jólaleikrit Útvarpsins að þessu sinni og flutt í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá frumsýningu þess á Íslandi, eða á jólum 1911 í Iðnó. Hér byggir Marta á rómaðri sýningu sinni með leikhópnum Aldrei óstelandi og Norðurpólsins sem vakti mikla athygli á síðasta leikári og var tilnefnd til Grímunnar í ár sem sýning ársins.
Halla er ekkja í góðum efnum sem að ræður til sín vinnumanninn Kára. Þau fella hugi saman og hún gerir hann brátt að ráðsmanni sínum en Kári á sér leyndarmál sem að reynist þeim örlagaríkt. Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslenskra leikbókmennta og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum síðan.
Með hlutverkin fjögur í þessari leikgerð fara Edda Björg Eyjólfsdóttir (Halla), Guðmundur Ingi Þorvaldsson (Kári), Bjartur Guðmundsson (Arnas) og Valdimar Örn Flygenring (Björn).
Einnig heyrast brot úr útvarpsflutningnum á leiksýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fjalla-Eyvindi frá árinu 1968
FJALLA-EYVINDUR verður flutt á jóladag, sunnudaginn 25. desember.
Þess má geta að í desember verða fluttir síðla á fimmtudagskvöldum ýmsir þættir um Jóhann Sigurjónsson og leikrit hans. Á nýjársdag, sunnudaginn 1. janúar, verður síðan flutt ein elsta upptaka útvarpsins á útvarpsleikriti. Hér er um að ræða víðfræga upptöku á leikriti Jóhanns GALDRA-LOFTI frá árinu 1947 í leikstjórn Lárusar Pálssonar. Með aðalhlutverkin fara: Lárus Pálsson (Loftur), Soffía Guðlaugsdóttir (Steinunn), Bryndís Pétursdóttir (Dísa) og Róbert Arnfinnsson (Ólafur).
Útvarpsleikhúsið hefur nú haft fyrir sið á undanförnum árum að koma með úr djúpi safns síns perlur íslenskrar leiklistar til flutnings fyrsta sunnudag ársins. Þess er skemmst að minnast að síðast var það fræg upptaka af alþýðuleiknum MANNI OG KONU. Meðan á þeirri útsendingu stóð var langmest hlustað á Rás 1 af öllum útvarpsstöðvum landsins og töldust um 32.000 manns hafa notið útsendingarinnar.
Ungur höfundur, Ævar Þór Benediktsson, er að leggja lokahönd á nýtt leikrit fyrir Útvarpsleikhúsið, sem hann nefnir ÍMYNDAÐAR AFSTÆÐISKENNINGAR. Leikstjóri þess mun verða annar ungur leikhúsmaður, Árni Kristjánsson. Ævar vakti nokkra athygli fyrir óvenjulegt og ögrandi leikrit sitt sem frumflutt var öllum að óvörum 1. apríl sl. þá undir heitinu KALLINN- útvarpsþáttur, en hét í rauninni NÁFÖL.
ÍMYNDAÐAR AFSTÆÐISKENNINGAR verður flutt sunnudaginn 11. mars.
Páskaleikrit Útvarpsins að þessu sinni verður útvarpsleikgerð hins reynda leikhúsmanns Sveins Einarssonar á JOBSBÓK í þýðingu Helga Hálfdanarsonar og í leikstjórn Sveins. Hér er um einleik að ræða þar sem Arnar Jónsson leikari sem fyrr á árinu hlaut Grímuna sem leikari ársins, mun eiga sviðið einn. Áskell Másson er höfundur tónlistar. Menningarsjóður útvarpsstöðva styrkir verkið.
JOBSBÓK verður flutt á páskadag, sunnudaginn 8. apríl.
Í vetur mun einnig fjöldi nýlegra verka verða fluttur á sunnudögum kl. 14 auk leikdagskráa og leiklistarþátta.
Þá munu Leiklistarkvöld Útvarpsins verða á öllum laugardagskvöldum í október, desember, febrúar og apríl, þar sem ýmis stórvirki leikbókmenntanna verða flutt úr miklu safni Útvarpsleikhússins.