Síðustu daga hafa fjölmargir einstaklingar sem dvöldu á uppeldisheimilinu í Breiðavík sagt frá þeim misþyrmingum sem viðgengust heimilinu og einnig greint frá því kynferðislega ofbeldi sem margir þeirra voru beittir. Ástandið á heimilinu virðist hafa verið verst í tíð Þórhalls Hálfdánarsonar sem var forstöðumaður á árunum 1964 -1971. Þó eru einnig frásagnir af slæmum aðbúnaði drengjanna meðan aðrir gengdu þar forstöðu. Við byrjum á að rifja upp helstu staðreyndir í þessu máli í samantekt sem Þóra og Sigmar tóku saman.
Kastljós óskaði eftir viðtali við Bjarna Þórhallsson, fyrrverandi forstöðumann í Breiðavík, vegna ásakanna um að hann hafi beitt drengina harðræði. Bjarni segist ekki muna eftir að hafa beitt nokkurn Breiðavíkurdrengjanna ofbeldi. Hann segist heldur ekki hafa séð föður sinn beita ofbeldi á heimilinu. Að öðru leyti neitaði hann að tjá sig.
Á mánudagskvöldð síðasta var Páll Elísson í viðtali í Kastljósinu en hann dvaldi í Breiðavík í 2 ár frá 9 ára aldri. Hann sagði frá því í þættinum þegar honum var nauðgað af einum vistmanni heimilisins. Hallgrímur Sveinsson var forstöðumaður í Breiðavík þegar þetta gerðist. Guðrún Sigurðardóttir fréttamaður okkar á Ísafirði hitti Hallgrím á Þingeyri í dag og spurði hann út í þetta atvik. Hún spurði hann einnig út í þær frásagnir af ofbeldi, misnotkun og hrottaskap sem vistmenn segast hafa búið við á í Breiðuvík.
Ingvar Jóel Ingvarsson er hraustasti hjartasjúklingur landsins og þótt víðar væri leitað. Tveimur árum eftir stóra hjartaaðgerð lyftir hann meira en 200 kílóum í bekkpressu og um síðustu helgi keppti hann á íslandsmótinu í bekkpressu í fyrsta sinn frá því hann veiktist. Sigmar fylgdist með.
Orðspor Íslendinga og ímynd landsins skiptir landsmenn miklu máli en hvaða augum líta aðrar þjóðir okkur. Simon Anholt hefur svörin við því en hann hefur hjálpað ríkisstjórn Íslands við að vinna að ímyndarmálum landsins. Hann gerði meðal annars stóra rannsókn meðal 35 þjóða og í henni kemur meðal annars fram afstaða þessara þjóða til Íslands. Jóhanna ræddi við Simon Anholt.
Kira Kira er listamannsnafn Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur, en hún er m.a. einn af forsprökkum Tilraunaeldhússins. Kristín Björk er mikið á faraldsfæti, og er nýlega komin heim úr tónleikaferðalagi um Japan og England, en í apríl mun hún koma fram í Helsinki og Stokkhólmi. Kristín eða Kira Kira kemur og ætlar að flytja fyrir okkur lagið Romantic Accident, sem má finna á plötunni Skotta.