Kastljós, þriðjudaginn 4. október 2011

 

Þó nokkur hópur fólks kom saman á Austurvelli og barði tunnur og hrópaði í gjallarhorn á meðan á eldhúsdagsumræðum stóð á Alþingi. Helgi Seljan og Daníel Friðriksson voru á staðnum og ræddu við mótmælendur um hvers vegna þeir mótmæltu og hverju þeir vildu að mótmælinu skiluðu. Reynsla Páls Magnússonar af starfi aðstoðarmanns Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra var nóg til að uppfylla skilyrði laga um sérþekkingu á bankamálum þegar Páll var valinn hæfastur til að gegna starfi forstjóra Bankasýslu Ríkisins. Þetta segir Þorsteinn Þorsteinsson stjórnarformaður sem telur þó að störf hans fyrir Valgerði á þeim tíma þegar umdeild einkavæðing bankanna fór fram, hafi ekki átt að vinna gegn því að hann hlyti starfið. Helgi Seljan ræddi við Þorstein um þessi mál og fleiri.   Hljómsveitin White Signal er skipuð fimm krökkum á aldrinum fjórtán til sextán ára héðan og þaðan af höfuðborgarsvæðinu. Þau eru öll í tónlistarnámi og í sumarfríinu komu þau saman í Mosfellsbænum og æfðu átta til tíu tíma á dag. Þrjú þeirra semja og afraksturinn er átta frumsamin lög sem sum hver eru komin á Youtube, en markmiðið er að gefa út disk eftir næstu Músíktilraunir þar sem stefnt er hátt. Það eru engin ástarsambönd eða vesen segja þau ekki einu sinni rifrildi um tónlistarstefnu heldur mikil vinátta en faðir annarrar söngkonunnar pískar þau víst áfram á æfingum. Kastljós heimsótti hópinn á æfingu.    


þriðjudagur 4. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR