Látinn er Hallgrímur Björgvinsson, þrjátíu og fjögurra ára að aldri. Hallgrímur var um margt merkilegur maður. Hann þjáðist af geðklofa með ofsóknaræði, var oft með miklar ranghugmyndir og ofheyrnir en gat á einstakan hátt útskýrt ástand sitt þannig að allir í kringum hann skildu. Með þessa eiginleika sína að vopni barðist Hallgrímur fyrir eigin heilsu og gegn fordómum og stofnaði með öðrum samtökin Hugarafl sem unnu að bættum aðstæðum og breyttu viðhorfi gagnvart geðsjúkum. Sterk vinátta tókst með honum og iðjuþjálfanum Auði Axelsdóttur sem beitir óvenjulegri og persónulegri nálgun við endurhæfingu geðsjúkra en hún telur lyfjagjöf vera ofnotað úrræði í geðheilbrigðismálum. Maður hennar, Eiríkur Guðmundsson gerði ásamt Jóni Agli Bergþórssyni heimildarmynd um Hallgrím sem sýnd verður í sjónvarpinu. Við fengum að kynnast Hallgrími með augum Auðar og Eiríks og því sem hann skildi eftir sig þegar hann varð bráðkvaddur.
Bláa lónið er orðið alltof stórt svo stórt að það er við það að flæða yfir veginn að baðstaðnum heimsþekkta. Ástæðan er að hraunglufur undir lóninu hafa stíflast. Lausn á málinu mun kosta HS Orku ríflega hálfan milljarð króna.
Erlendir frétta- og kvikmyndagerðarmenn flykktust til Íslands eftir hrunið mikla haustið 2008, enda efniviðurinn mikill. Bretarnir Heather Millard og Henry Bateman voru þar á meðal en komust svo að þeirri niðurstöðu að það væri miklu áhugaverðara að komast að því hvaða leið Íslendingar gætu farið til að komast út úr kreppunni á eigin verðleikum, hugmyndaauðgi og því sem landið gefur. Þóra Arnórsdóttir og Sigurður Jakobsson forvitnuðust um afraksturinn, heimildamyndina Future of Hope.
Grænleska hljómsveitin Nanook spilaði í þættinum en sveitin syngur á grænlensku og er ein vinsælasta hljómsveit Grænlands. Margrét Erla og Sigurður Jakobsson litu við á æfingu í Norræna húsinu.