Kastljós, þriðjudaginn 16. mars 2010

 

Hjálparsími Rauða Krossins fær 40% fleiri símtöl í dag en fyrir hrun vegna samskiptaörðugleika og sambandsslita. Við ræddum þessa aukningu hér í þættinum.

Við hittum líka söngkonuna Regínu Ósk sem nú undirbýr svokallaða Carpenders tónleika en þar hyggst hún ásamt valinkunnum listamönnum flytja lög sveitarinnar.

Við byrjuðum hins vegar á öðru en. Talsmaður neytenda segir svokölluð smálán sem neytendum bjóðast nú í gegnum farsíma sína vera hrein okurlán og vill að löggjafinn grípi til aðgerða vegna þeirra. Hann leggur jafnvel til að svokallað vaxtahámark sem afnumið var fyrir tuttugu árum verði tekið upp að nýju. Vextir á smálánum eru margfalt hærri en þeir vextir sem menn voru dæmdir fyrir að rukka fólk um fyrir tuttugu árum. Framkvæmdastjóri smálánafyrirtækis sem nýverið hóf starfsemi segir markhóp fyrirtækisins vera ungt fólk en hafnar því alfarið að lánin séu veitt með okurvöxtum án þess að greiðslugeta sé könnuð til hlítar. Ekkert eftirlit er með starfsemi fyrirtækjanna sem virðast starfa í hálfgerðu tómarúmi lagalega. Helgi kynnti sér smálánin.

Símtölum vegna samskiptaörðugleika og sambandsslita hefur fjölgað um 40% hjá Hjálparsímanum 1717 frá því að efnahagshrunið varð. Fjárhagsörðugleikar virðast eiga þar stóran hlut að máli þrátt fyrir mikla áherslu á ný gildi í opinberri umræðu og niðurstöður könnunar sem sýnir að börnum líði að jafnaði betur nú en fyrir hrun. Þær Elfa Dögg Leifsdóttir sem hefur umsjón með 1717 og Sigrún Júlíusdóttir prófessor sem starfað hefur við fjölskyldurannsóknir og ráðgjöf í áratugi settust hjá Þóru til að ræða þetta mál.

Söngkonan Regína Ósk að rifjaði upp tónlist The Carpenters en um þessar mundir eru 60 ár frá því að söngkonan Karen Carpenter fæddist. Karen lést einungis rúmlega þrítug úr hjartaáfalli sem rakið var til átröskunar söngkonunnar. Með Regínu kemur fram valinkunnur hópur tónlistarmanna. Helgi leit inn á æfingu hjá hópnum.


þriðjudagur 16. mars 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR