Kastljós, þriðjudaginn 11. október 2011

 

Kastljós hóf þáttinn við Öxará sem hreinlega iðar af lífi um þessar mundir, því nú er háfengitími hjá konungi þjóðgarðsins, Þingvallaurriðanum, sem flykkist upp í ána til að stunda ástarleiki. Það stórsér á sumum þeirra eftir slagsmál og átök vegna þessa, enda eru þeir stærstu sannkallaðir tröllafiskar og ekkert lamb að leika sér við. Jóhannes Sturlaugsson hefur rannsakað þennan merkilega fisk í tólf ár, og á marga góðkunningja meðal urriðanna. Brynja Þorgeirsdóttir og Sigurður Jakobsson hittu hann á Þingvöllum.

Dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar, sem hlaut þungan dóm í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, hafa vakið mikla athygli frá því Stöð 2 birti brot úr þeim. Þar lýsir hann einangrun sinni í Síðumúlafangelsinu og heldur fram sakleysi sínu, líkt og hann gerði til dauðadags. Tryggvi talaði mjög sjaldan um reynslu sína opinberlega - Kastljós sýndi fyrsta sjónvarpsviðtalið við Tryggva, sem Þorfinnur Ómarsson tók árið 1996.

Einn stærsti tölvuleikjaframleiðandi í heimi, Chilingo, veðjar nú á íslenskan tölvuleik fyrir börn og verður leikurinn settur á markað í Apple netversluninni í næsta mánuði. Leikurinn heitir the Moogies og er íslensk framleiðsla frá A til Ö og eru framleiðendur hans hjá fyrirtækin Plain Vanilla bjartsýnir á að hann nái mikilli hilli meðal ungra barna um allan heim. Þorsteinn Friðriksson settist hjá Sigmari en fyrst fengum við að kynnast leiknum nánar.

„Úr veggjakroti í verðmæti" er verkefni sem Ellen Guðmundsdóttir hefur þróað síðustu tvö árin. Markmiðið er að ná til svokallaðra veggjakrotara og bjóða þeim upp á stað þar sem þeir fá kennslu í listsköpun og aðstöðu til listsýninga. Unglingar sem stunda þessa iðju eru margir byrjaðir að fikta við fíkniefni og eru forvarnir stór hluti verkefnisins. Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason hittu Ellen úti á Granda.


þriðjudagur 11. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR