Kastljós, miðvikudaginn 5. október 2011

 

Sigurjón Sighvatsson hefur framleitt hátt í fimmtíu kvikmyndir og hundruð tónlistarmyndbanda með mörgum af þekktustu Hollywoodleikurum og tónlistarmönnum heims. Nýjasta mynd hans, Killer Elite, með Robert DeNiro í aðalhlutverki, verður frumsýnd á Íslandi 7. október. Brynja Þorgeirsdóttir og Egill Eðvarðsson settust niður með Sigurjóni og röktu úr honum garnirnar um myndina, fræga leikara og lífið í Hollywood.

Enn á að skera niður í heilbrigðiskerfinu. Á Landspítalanum hefur starfsfólki verið fækkað verulega, tækjakostur er gamall og óviðunandi og ekki er til fé til að halda byggingum við. Samt er nú verið að vega og meta hvort ekki borgi sig að fara í fimmtíu milljarða króna framkvæmdir við fyrsta hluta nýs sjúkrahúss við Hringbraut. Hvernig gengur þetta upp? Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra settist hjá Þóru Arnórsdóttur.

Allar afskriftir til fyrirtækja og einstaklinga yfir 100 milljónum verða birtar í álagningarskrá ef frumvarp sem 15 þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram á Alþingi nær fram að ganga. Þingmennirnir vilja að afskriftir í bankakerfinu séu uppi á borðum enda hafi fréttir af milljarða afskriftum til einstakra fyrirtækja valdið mikilli úlfúð í samfélaginu. Ekki eru þó allir sammála, Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra er mótfallinn birtingu afskriftanna samkvæmt því sem fram kom á fundi efnahags- og skattanefndar. Þingmennirnir Skúli Helgason og Eygló harðardóttir ræddu þetta mál við Helga Seljan.


miðvikudagur 5. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR