Undanfarnar vikur hafa verið fluttar fréttir af aðkomu Bjarna Bendiktssonar að félaginu Vafningi sem fékk há lán frá Sjóvá í gegnum aðra eigendur, en sá gjörningur er nú til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Bjarni segir einu tengsl sín við málið þau að hann fékk umboð til að veðsetja hlutabréf fyrir föður sinn og föðurbróðir sem voru hluthafar í Vafningi. Bjarni var sjálfur stjórnarformaður og hluthafi félags sem átti í Vafningi í gegnum annað félag. Helgi ræddi þetta við Bjarna og líka þá sátt sem ríkisstjórn og stjórnarandstaða reyna að ná í Icesave málinu.
Það hefur komið býsna fjölbreyttur hópur listamanna frá Ólafsvík í gegnum tíðina. Meðal annars myndlistarmaðurinn ERRÓ, rithöfundarnir Þorgrímur Þráinsson og Stefán Máni, ljóðskáldið Jóhann Jónsson og nú síðast hljómsveitin þungarokkssveitin Endless Dark. Við skruppum í kvöldheimsókn til Ólafsvíkur.
Leikritið og ádeilan Góðir Íslendingar hefur fengið afbragðsdóma að undanförnu, en einnig hefur borið á því að fólk hafi gengið út af sýningunni, sem þykir draga upp afar nöturlega mynd af Íslendingum. Tveir höfunda verksins, og leikarar, þeir Jón Atli Jónasson og Jón Páll Eyjólfsson settust hjá Brynju en fyrst sáum við örstutt atriði úr sýningunni.
Það eru átta skólar eftir í hinni sívinsælu spurningakeppni Gettu Betur. Við drógum um það hvaða skólar mætast í sjónvarpsviðureigninni.