Við hófum þáttinn á málefnum þjóðkirkjunnar en biskup ákvað að fara þess á leit að nefnd innan kirkjunnar skipaði sannleiksnefnd til að rannsaka ásakanir um kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar fyrrum biskups. Þórhallur Heimisson sóknarprestur og Illugi Jökulsson settust hjá Helga til að ræða þessi mál og ekki síst hvort aðskilja eigi ríki og kirkju.
Bændurnir á Raufarfelli sendu mjólkurkýrnar sínar í vist í betra loftslagi þegar Eyjafjallajökull tók að spúa ómældu öskumagni yfir sveitina þeirra. Svæðið var óbyggilegt, segir Kristinn bóndi og hvorki fuglar né kóngulær hafa snúið aftur. Þau ætla hins vegar að halda ótrauð áfram, eru búin að sannfæra börnin um að það sé óhætt að búa þarna og vonast til að endurheimta kýrnar um áramótin. Þóra Arnórsdóttir og Steingrímur Dúi heimsóttu Kristinn og Önnu á dögunum, en þau voru fljót að taka ákvörðun um að senda kýrnar í burtu þegar gosið hófst.
Blásararnir frá Belgistan kallast hljómsveit á íslensku sem segist vera frá uppdiktuðu héraði í Belgíu. Hún heitir í raun La Fanfare du Belgistan og er hér til að spila á Jazzhátíð Reykjavíkur. Hljómsveitin var stödd í Nauthólsvík og tók fyrir okkur lagið.