Kastljós, miðvikudaginn 1. september 2010

 

Rúmt ár er liðið frá því samþykkt var á Alþingi Íslendinga að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Síðan hefur hópur þingmanna úr öllum flokkum, nema Samfylkingunni lagt til að umsóknin verði dregin til baka. Aðalsamningamaður Íslands var gestur okkar í þættinum.

Samningaviðræðurnar við Evrópusambandið. Hvar standa þær og er eitthvað að gerast, hvenær verður samningurinn tilbúinn? Aðalsamningamaður Íslands Stefán Haukur Jóhannesson settist hjá Þóru til að svara þessum spurningum og fleiri til.

 

Vera Þórðardóttir er íslenskur fatahönnuður búsettur í London. Hún hefur náð að skapa sér nafn í hinum hála heimi tískunnar því hin heimsþekkta söngkona og ólíkindatól Lady Gaga gengur um í fötum frá henni. Við náðum tali af Veru þegar hún var í heimsókn á Íslandi.

 

Björgunarsveitin Landsbjörg skipulagði námskeið fyrir leitarhunda. Veður og aðrar aðstæður geta gert björgunarsveitum erfitt fyrir en lyktarskyn hundsins er öflugt leitartæki. Margrét Erla og Sigurður Jakobsson kynntu sér hvernig hundarnir læra að leita að týndu fólki við alls kyns aðstæður.

Bankastjóri Arion banka  útilokar ekki að Hagar verði seldir skúffufyrirtæki frá Tortóla eða Luxemborg þó yrði farið sérstaklega vel yfir slík tilboð ef þau berast. Hann segir jafnframt litlar líkur á því að Bónusfjölskyldan fái að kaupa fleiri fyrirtæki útúr Hagasamsteypunni í fyrirhugðu útboði.  Svavar Halldórsson fréttamaður ræddi við Höskuld Ólafsson, bankastjóra Arion.

Hljómsveitin Nýdönsk er stödd í hljóðveri og tók sveitin eitt gamalt og gott lag Jakobs Magnússonar upp á arma sína. Lagið verður liður í tónleikverki sem lítur dagsins ljós eftir áramótin. Margrét Erla og Steingrímur Dúi fengu að forvitnast og kynnast hljómsveit með leikhúsdrauma.


miðvikudagur 1. sept. 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR