Ríkisstjórnin fullyrðir að allir geti fengið úrlausn sinna mála í þeim aðgerðum sem kynntar voru fyrir heimilin í landinu. Í ljósi stöðunnar er þetta stór fullyrðing, en er hún rétt? Þingkonurnar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Eygló Harðardóttir fóru yfir þetta í upphafi þáttar. Fólksfækkun varð á landinu í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar vegna mikilla fólksflutninga frá landinu. Við ræddum við mann sem flytur til Noregs fljótlega með fjölskyldu sinni og heyrðum af námskeiði sem haldin eru til að auðvelda fólki að flytja burt. Svo voru það söngraddir með mottu, Raghildur Steinunn var á Langholtsvegi. Við rifjuðum líka upp leiksýninguna þjófar, lík og falar konur eftir Dario Fo sem gekk í þrjú ár eftir frumsýningu fyrir 45 árum og sýndum þessar gömlu upptökur þar sem helstu leikarar þjóðarinnar á síðustu öld fara á kostum. En við byrjum á aðgerðum fyrir heimilin í landinu.
Við skiptum aftur yfir til Ragnhildar Steinunnar sem er stödd var í æfingarhúsnæði Karlakórsins Fóstbræður en þar talaði hún við menn með mottu.
Fólksfækkun varð á landinu í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar. Fækkunin skýrist af miklum fólksflutningum frá landinu og eru íslenskir ríkisborgarar þar í meirihluta. Um þessar mundir eru haldin námskeið fyrir þá sem vilja flytja af landi brott um hvernig best skuli undirbúa flutninginn. Alma Sigurðardóttir sem kennir á slíku námskeiði settist hjá Brynju ásamt Atla Steini Guðmundssyni sem ætlar að flytja til Noregs ásamt fjölskyldu sinni.
Fyrir nákvæmlega 45 árum eða þann 17. mars 1965 frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur leikritið Þjófar, lík og falar konur eftir Dario Fo í þýðingu Sveins Einarssonar. Þessi sýnig varð geysilega vinsæl og átti eftir að ganga fyrir fullu húsi í heil 3 ár. Stórskotalið leikara bar uppi sýninguna, þau Haraldur Björnsson, Guðmundur Pálsson, Borgar Garðarsson, Arnar Jónsson, Margrét Ólafsdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir, að ógleymdum Gísla Halldórssyni sem hlaut silfurlampann fyrir hlutverk sitt sem götusópari númer 2 í þriðja hluta verksins, nakinn maður og annar í kjólfötum. Egill Eðvarðsson fletti upp í 45 ára gamalli upptöku Sjónvarpsins frá þessum tíma.