Íslenskt samfélag hálflamaðist þegar fréttir bárust af því að Goðafossi hefði verið sökkt skammt undan Garðskaga 10. nóvember árið 1944. Fjörutíu og fjórir fórust með skipinu, þar af 25 Íslendingar. Ekki er vitað til að aðrir séu á lífi úr áhöfn þýska kafbátsins sem grandaði skipinu, en Horst Koske, sem þá var sautján ára loftskeytamaður. Sigurður Guðmundsson var átján ára háseti á Goðafossi en þessir tveir hálfníræðu menn hittust nýverið, sextíu og sjö árum eftir að þýskur kafbátur sökkti Goðafossi.
Það varð kurr meðal sveitarstjórnarmanna og þingmanna Suðurlands þegar tilkynnt var að Réttargæsludeildinni að Sogni yrði lokað og starfsemin flutt í nýja og stærri deild á Kleppi, en það felur í sér að 30 störf verða flutt til Reykjavíkur. Páll Matthíasson, geðlæknir og framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala segir hagsmuni sjúklinganna ráða ferðinni frekar en byggðasjónarmið. Páll settist hjá Brynju Þorgeirsdóttur.
Þann 12. október var frumsýning á kvikmyndinni Borgríki. Hún segir frá serbneskum bifvélavirkja sem missir ófætt barn sitt í árás. Í hefndaraðgerðum tvinnast örlög hans saman við lögreglukonu, spilltan yfirmann hennar í fíkniefnadeild og glæpakóng sem er að missa tökin á veldi sínu. Myndin gerist á einum mánuði í undirheimum Reykjavíkur, þegar erlend glæpasamtök ákveða að taka yfir eiturlyfjarmarkaðinn. Margrét Erla var stödd í Háskólabíói með tveimur leikurum myndarinnar, en fyrst sáum við stiklu úr myndinni.
Föstudaginn 14. október heldur Ásgeir Sandholt kökugerðarmeistari til Parísar til að taka þátt í úrslitum World Chocolate Masters keppninnar sem er ein sú virtasta í heimi. Þar etur hann kappi við 18 manns sem allir keppa að sama markinu - að verða heimsmeistarar í súkkulaðigerð. Síðustu mánuði hefur Ásgeir æft stíft fyrir keppnina og þróað ótrúleg meistaraverk - úr súkkulaði - sem öll eru æt. Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason heimsóttu Ásgeir á æfingu.
Biophilia Bjarkar er miklu meira en plata. Hún er lærdómstól, óður til náttúru og vísinda og tónleikarnir eru sjónarspil eðlisfræði og tónlistar. Í tengslum við tónleikana er boðið upp á námskeið fyrir grunnskólabörn þar sem þau læra um náttúruvísindi í gegnum tónlist og sköpun. Hápunktur námskeiðanna eru þegar börnin fá að skoða sérsmíðuð hljóðfæri sem byggja á því sem þau eru að læra - og auðvitað fara á tónleika Bjarkar. Margrét Erla og Jón Egill litu inn á allskyns Bjarkar- og vísindatengda starfsemi í Hörpunni.