Stjórn SPRON ákvað að gera sjóðinn að hlutafélagi sumarið 2007, en áður en markaðsskráningin gekk í gegn skiptu stofnfjárbréf um hendur fyrir milljarða króna. Þeir sem keyptu hafa glatað öllu sínu fé, en þeir sem seldu græddu mikið. Meðal þeirra sem græddu eru Árni Þór Sigurðsson alþingismaður og Össur skarphéðinsson ráðherra. Þóra Arnórsdóttir fór yfir þessa sögu og ræddi við Árna Þór en þess má geta að Össur Skarphéðinsson svaraði okkur ekki þegar við leituðum til hans vegna þessa.
Fulltrúar Íslands í Evróvisjón, þau Hera Björk og Örlygur Smári, voru gestir Sigmars og fóru meðal annars yfir riðilinn sem Ísland keppir í.
Fyrirtækið Icelandair hefur lagt fram beiðni um að opna spilavíti á hóteli sínu við Suðurlandsbraut og hefur kynnt stjórnvöldum þessi áform. Það eru bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir sem eiga hugmyndina en hana sækja þeir til Danmerkur og eru rökin meðal annars þau að þar sæti slík starfsemi miklu eftirliti og háum sköttum. Júlíus Þór Júlísson, formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn er ósáttur við þessi áform og hann kom hingað ásamt Arnari Gunnlaugssyni.
Við lukum Kastljósinu með lagi frá Elízu Newman. Hún flutti titillag plötu sinnar „Pie in the sky" ásamt hljómsveit sinni.