Eins og fram kom í Morgunblaðinu er 1,8 milljarða lán Reykjanesbæjar við þýskan banka gjaldfallið og samningar um endurfjármögnun virðast ekki ganga. Forsvarsmenn bæjarins standa frammi fyrir miklum erfiðleikum vegna þessa og erfiðrar skuldastöðu bæjarins en talsmenn minnihlutans í bæjarfélaginu benda á að gjöld séu langt umfram tekjur. Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ var gestur Kastljóss.