Kastljós, mánudaginn 17. október 2011

 

Ekkert verður af fyrirhuguðu álveri Alcoa á Bakka. Þetta var tilkynnt á fundi á Húsavík. Ástæðan er sögð forsendubrestur, í ljós hafi komið að Landsvirkjun geti ekki tryggt þá orku sem til þarf á samkeppnishæfu verði og því ,,sé ekki lengur unnt að réttlæta fjárfestingu af þeirri stærðargráðu sem bygging og rekstur álvers á Bakka er," eins og segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Við ræddum við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Sóley Stefánsdóttir hafði gert garðinn frægan með hljómsveitunum Seabear og Sing Fang Bous áður en hún gaf út sína fyrstu sólóplötu We Sink. Dómar hafa allir verið á einn veg um þá plötu, eintómt lof. Sóley kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni og heillaði tónleikagesti. Sóley flutti lagið Smashed Birds.


mánudagur 17. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR