Kastljós, mánudaginn 10. október 2011

 

Sláandi viðtal við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur sem sýnt var sunnudaginn 9. október hér á RÚV vekur upp margar spurningar um afgreiðslu máls hennar innan þjóðkirkjunnar. Guðrúnu Ebbu finnst sjálfri að kirkjan hafi brugðist sér. Hvernig stendur þjóðkirkjan í þessu máli og þessum málaflokki? Gunnar Rúnar Matthíasson formaður fagráðs þjóðkirkjunnar og Magnús Kristjánsson formaður úrbótanefndar kirkjuþings settust hjá Jóhannesi.

Nútímafeður þurfa að tileinka sér ýmsa færni sem ekki var ætlast til að þeir byggju yfir á árum áður. Um helgina var þeim feðrum sem vildu, boðið að læra að greiða dætrum sínum, hirða hár og taka á óboðnum gestum. Tækniskólinn stóð fyrir þessu og dæturnar virtust nokkuð ánægðar með metnað feðra sinna, sem vildu læra að gera eitthvað meira og flóknara en ,,bara tagl" eins og ein þeirra komst að orði. Margrét Erla Maack og Benedikt Ketilsson fylgdust með. (Og til að gæta alls jafnræðis mun Endurmenntun Tækniskólans standa fyrir svipuðu námskeiði fyrir mömmur og ömmur á næstunni).

Það er fátt sem skákmeistarinn Anatolí Karpov hefur ekki náð að gera á sínum ferli. Hann er margfaldur heimsmeistari en vinnur nú öflugt góðgerðarstarf með því að reka 150 barnaskóla. Honum finnst þó leiðinlegt að hafa ekki fengið tækifæri til að tefla við Bobby Fischer. Karpov var staddur hérlendis í boði Taflfélags Reykjavíkur, CCP og MP banka, en Karpov er nýgenginn í Taflfélagið. Þóra Arnórsdóttir og Sigurður Jakobsson hittu meistarann yfir skák.

Páll Ólafsson er það nítjándu aldar skáld sem lifað hefur hvað best með þjóðinni, ástarljóðin hans eru einfaldlega undurfalleg og tímalaus. Felix Bergsson leikari (og söngvari) gaf nýverið út disk þar sem hann syngur ellefu ljóð Páls við lög eftir sjö lagahöfunda. Felix var gestur Kastljóss í fylgd með Stefáni Má Magnússyni og Jóni Ólafssyni, einum lagahöfundanna.


mánudagur 10. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR