Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Skúlasonar biskups, mátti þola áralangt kynferðisofbeldi af hálfu föður síns frá því hún var lítið barn. Guðrún hóf að vinna úr sárri reynslu sinni fyrir átta árum, og segir frá henni í bókinni "Ekki líta undan" sem kemur út 10. október. Rétt er að taka fram að í innslaginu er sagt að ofbeldið hafi byrjað þegar hún var um sex ára. Hið rétta er að Guðrún Ebba telur að misnotkunin hafi byrjað fyrr. Brynja Þorgeirsdóttir og Sigurður Jakobsson tóku við.
Innanríkisráðherra hefur kynnt þriggja manna starfshóp sem á að fara yfir Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Tveir af þeim sex sem dæmdir voru í fangelsi vegna málsins eru nú látnir en allir hafa dregið játningar sínar til baka og segja að þær hafi verið falskar. Erla Bolladóttir sem dæmd var í 3 ára fangelsi vegna málsins og Sigríður Sjöfn Sigurbjörnsdóttir ekkja Tryggva Rúnars Leifssonar sem hlaut þungan dóm í málinu settust hjá Jóhannesi til að ræða viðbrögð sín við ákvörðun ráðherra.
Hvaða listamaður á verk í Ráðhúsi Reykjavíkur, Stjórnarráðinu og á Bessastöðum? Ekki er það Erró... kannski Gunnlaugur Scheving... en rétt svar er handverksmaðurinn Hermann Birgir Guðjónsson. Kastljós kíkti í heimsókn til Hermanns á Hrafnistu.