Kastljós, föstudaginn 5. febrúar 2010

 

Við ræddum málefni umsvifamesta verslunarfyrirtækis landsins, Haga. Nú hefur Arion banki ákveðið að Hagar verði skráðir í Kauphöllina og stjórnendurnir njóti forkaupsréttar á 15% hlut. Eignarhaldsfélag Haga skuldar bankanum um 50 milljarða króna og óvíst hversu stóran hluta bankinn neyðist til að afskrifa. Forstjóri Arion banka var hjá okkur í þættinum.

Við fórum líka í heimsókn í leikskólann á Hörðuvöllum en þar var mikið fjör þegar haldið var upp á dag leikskólans og hljómsveitin Pollapönk rokkaði fyrir börnin.

Við hittum nokkra unga listamenn sem sýna í Listasafni Reykjavíkur. Þeir halda sig við málverkið þó videóverk og innsetningar virðist allsráðandi meðal annarra yngri listamanna.

En við byrjuðum á málefnum Haga. Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Arion banka kom til okkar.

Ungir listamenn sem alist hafa upp við sjónræna menningu mótaða af teiknimyndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist sýna nú myndlist sína í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin sem ber heitir ljóslitlífun er afar litrík, fígúratíf og glettin en þau Ragnhildur Steinunn og Steingrímur Dúi heimsóttu safnið.

Það var mikið fjör á leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði en þá var haldið uppá dag leikskólans.  Einn kennaranna á Hörðuvöllum er tónlistamaðurinn Haraldur Gíslason, stundum kenndur við Botnleðuju og í tilefni dagsins fékk hann félaga sína úr hljómsveitinni Pollapönk til að rokka fyrir  börnin sem kunnu vel að meta það enda tónlistin snar þáttur í kenslunni á leikskólanum þar sem óvenju margir karlmenn starfa. Sigmar og Sigurður Jakobsson fylgdust með.


föstudagur 5. feb. 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR