Fréttir vikunnar hafa snúist að miklu leiti um kynferðisbrot fyrrum biskups og viðbrögð kirkjunnar við henni. Davíð Þór Jónsson, mastersnemi í guðfræði og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem skrifaði fyrir skemmstu bók um ofbeldi á Íslandi fóru yfir þetta mál hjá okkur hér í þættinum.
Við skiptum líka yfir á norðurland en á Akureyri voru opnunartónleikar Menningarhússins Hofs þar sem áttatíu eyfirskir tónlistarmenn koma fram. Við heyrðum tónlist Lay Low í þættinum en byrjuðum á annarskonar tónlist, tónlist stuðhljómasveitarinnar Sniglabandsins sem er tuttugu og fimm ára um þessar mundir, sem reyndar er ekki að sjá á síungum meðlimum þessarar stuðhljómsveitar. Margrét Erla og Benedikt Ketilsson fóru á æfingu hjá þeim í Skerjafirðinum.
Þjóðkirkjan hefur nú viðurkennt að Ólafur Skúlason, fyrrum biskum var kynferðisbrotamaður. Í nærri tvo áratugi vissu menn innan kirkjnnar af ásökunum á hendur honum en fyrst nú fengu konurnar sem sökuðu hann um ofbeldið fyrirgefningarbeiðni frá kirkjunni. Spjótin standa nú á biskupi íslands Karli Sigurbjörnssyni, sem er sakaður um að hafa reynt að sópa þessum málum undir teppið. Þau Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Davíð Þór Jónsson fóru yfir þetta mál og settust hjá Sigmari
Í þættinum var einnig litið inn á æfingu hjá Lay Low en þar var hún að spila og syngja ásamt Helenu Eyjólfsdóttur og fleirum á Akureyri.