Kastljós, föstudaginn 19. mars 2010

 

Þeir Gissur Sigurðsson og Gísli Einarsson eru báðir öflugir fréttamenn en hafa reyndar fengist við ýmislegt annað í gegnum tíðina. Þeir félagar voru gestir okkar og við rifjum upp leikferil þeirra beggja en Gissur lék Hauk Morthens með eftirminnilegum hætti í sjónvarpsmynd á sínum tíma og Gísli sýndi mikil tilþrif í Íslandsklukkunni fyrir nokkrum árum. Þeir hafa miklar skoðanir á þjóðmálunum og rifjuðu upp nokkrar eftirminnilegar fréttir sem þeir hafa flutt. 

Við skiptum beint upp í Borgarleikhús en þar var Brynja Þorgeirsdóttir stödd á frumsýningu leikritsins Gauragangs.

Hljómsveitin Cosmic call frá Akranesi hefur verið starfandi í rúmt ár og hefur tónlist þeirra verið áberandi í útvarpi að undanförnu. Cosmic call flutti okkur lagið "Lightbulbs".


föstudagur 19. mars 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR