Kastljós, föstudaginn 14. október 2011

 

Íslendingar fylltust óhug fyrir tveimur árum þegar eiginmaður Laufeyjar Ingibjartsdóttur nærri banaði henni í hrottalegri árás í Hörðalandi í Reykjavík og svipti sig svo lífi með því að drekka stíflueyði.  Laufey var lengi í aðgerðum og endurhæfingu eftir árásina og náði sér á strik  en í ársbyrjun greindist hún með krabbamein sem dró hana til dauða í vor. Þórdís, systir Laufeyjar, hefur tekið unga syni hennar í fóstur og hún sagði Sigmari Guðmundssyni sögu systur sinnar og drengjanna.

Svíinn Lars Lagerbäck hefur verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Adolf Ingi Erlingsson ræddi við hann að loknum blaðamannafundi þar sem ráðning hans var tilkynnt.

,,Þetta er dálítið eins og að vera á hraðstefnumótum frá morgni til kvölds í heila viku", segir Hólmfríður Mattíasdóttir, réttindastjóri Forlagsins, sem setið hefur við að kynna og selja verk  íslenskra höfunda á bókamessunni í Frankfurt. Það líður að lokum hennar, en þar hafa þrjú hundruð þúsund gestir rölt um og kynnt sér hluta af þeim 400.000 bókum sem eru þar til sýnis á 170.000 fermetrum. Við lukum Kastljósinu í Frankfurt, og Ingólfur Bjarni Sigfússon og Þór Ægisson sýndu okkur nú sitt af hverju sem sjá mátti á þessu flæmi, en Íslendingarnir sem þeir hittu eru sammála um að sérdeilis vel hafi tekist að nýta þá athygli sem heiðurssessinn á hátíðinni skilar.


mánudagur 17. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR