Frá því á hrunárinu 2008 hefur Ríkissjóður greitt þeim sem eru með húsnæðislán 42 milljarða króna í vaxtabætur. Þar til um síðustu áramót skipti þó ekki máli hvort þeir sem fengu bæturnar höfðu greitt nokkra vexti eða ekki - og miðað við að vanskil séu í kringum 15 prósent er ljóst að það er búið að greiða þúsundum einstaklinga verulegar fjárhæðir sem þeir áttu ekki rétt á - og það er ómögulegt að ná því fé til baka. Fjármálaráðherra segir þetta vissulega slæmt, en nú er loks búið að breyta lögum um vaxtabætur svo miðað er við sannanlega greidda vexti, en ekki gjaldfallna. Helgi Seljan og Jón Egill Bergþórsson kynntu sér málið.
Af hverju er tjörnin í Reykjavík svona óhrein og gruggug? Þessari spurningu og nokkrum öðrum ætlar að Kastljós að svara í samvinnu við Vísindavef Háskóla Íslands og munum við birta svörin í þættinum af og til í vetur. Hilmar Malmquist vatnalíffræðingur sagði okkur frá tjörninni í Reykjavík.
Það hafa mörg orð verið notuð til að lýsa Steve Jobs, stofnanda Apple, í gegnum tíðina. Snillingur, frumkvöðull, uppfinningamaður, listamaður og fleiri en sennilega fangar ekkert eitt orð þau áhrif sem hann hefur haft á daglegt líf fólks á tölvuöld. Steve Jobs lést miðvikudaginn 5. október og Steingrímur Árnason, fyrrverandi þróunarstjóri hjá Apple á Íslandi sagði okkur frá honum en fyrst heyrðum við í Steve Jobs sjálfum.
Feðgarnir Garðar og Garðar Thor Cortes vinna um þessar mundir að dúettaplötu þar sem þeir taka fyrir íslenskar dægurperlur. Kastljós fylgdist með vinnu við plötuna.