Hagar verða verða skráðir í kauphöllina og almenningi gefst færi á að kaupa í fyrirtækinu. Samkvæmt tilkynningu frá Arion Banka geta núverandi eigendur, Jóhannes Jónsson og fjölskylda keypt 15 prósenta hlut. Við fórum yfir þetta. Í framhaldi af bankahruninu hefur orðið landráð verið mikið notað í opinberri umræðu en er það sanngjarnt orð yfir það sem dunið hefur yfir. Við leituðum svara við þessu í þættinum. Helgi Seljan skoðaði einnig bíla sem eru að einhverju leiti búnir til á Íslandi. Við heimsóttum líka Skoppu og Skrítlu og heyrðum lag með Feldberg. En áður en við tókum fyrir Haga og Arion banka ætlum við fjölluðum við um íslenskt mál. Samkvæmt rannsókn íslenskufræðings sýnir þykir meirihluta ungmenna eðlilegt að segja setningar á borð við ,,það var sagt mér að gera þetta" og ,,það var sýnt mér leikrit". Brynja Þorgeirsdóttir og Sigurður Jakobsson komust að því að þótt margt ungt fólk tali svona þá á eldra fólkið erfitt með að skilja þetta.
Í marga mánuði hefur þjóðin beðið eftir því að Arion banki greini frá því hvað verður um fyrirtækið Haga sem bankinn leysti til sín frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fjölskyldu. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum verður fyrirtækið skráð í kauphöll og almenning og fagfjárfestum boðið að kaupa það. Jóhannes Jónsson fær að kaupa 10 prósent í fyrirtækinu og starfsmenn 5 prósent til viðbótar.
Þær ferðast um tímann, hitta risaeðlu, kúreka og ýmsar aðrar verur.Gulklæddar og glaðar að vanda hafa þær Skoppa og Skrítla nú heltekið Borgarleikhúsið með sínum ævintýraheimi og Ragnhildur Steinunn og Sigurður Jakobsson heimsóttu þær.
Hundruð bifreiða og vagna sem smíðuð eru á Íslandi eru í notkun á íslenskum vegum. Lítið hefur farið fyrir þessari tegund iðnaðar á Íslandi en aðstandendur Toppstöðvarinnar, orkuvers hugvits og þekkingar sem nýlega var hleypt af stokkunum í gömlu rafstöðinni í Elliðaárdal og ætla sér að breyta því. Það verður stór sýning í gömu rafstöðinni þar sem sýndir verða 25-30 bílar eftir íslenska hönnuði og verkmenn. Við fengum nokkra af þessum bílum hingað í portið til okkar en Helgi var staddur þar með aðstandendum sýningarinnar og bílasmiðunum.
Landráð í sögulegum skilningi eru annað en landráð í lagalegum skilningi sem eru aftur annað en landráð í vitund almennings. Hvernig svo sem það er þá hafa landráð ávallt verið einn alvarlegasti glæpur sem nokkur getur gert sig sekan um. Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur hefur rannsakað landráð í Íslandssögunni og finnst mikilvægt að hugtakið verði ekki gengisfellt nú í bræði vegna hrunsins. Þóra Arnórsdóttir og Benedikt Ketilsson hittu Guðna.
Feldberg tók lag af plötunni don´t be a stranger sem kom út fyrir jólin. Lagið heitir dreamin en þess má geta að lagið var að koma út á safnplötu í Frakklandi á dögunum.