Að fá berkla jafngilti dauðadómi fyrir marga í byrjun síðustu aldar. Engin lyf voru til, og sjúklingar lágu á berklahælinu á Vífilsstöðum mánuðum eða árum saman án þess að fá að hitta fjölskyldu sína vegna smithættu. Guðbjörg Petersen, sem veiktist af berklum aðeins sjö ára gömul, man vel eftir því hversu þungbær reynsla það var, en einnig hvernig einangrað samfélag sjúklinganna einkenndist af hlýju og gleði. Við hverfum nú aftur í tímann með Guðbjörgu - og yfirlækni Vífilsstaða til þrjátíu ára. Spítalinn stendur nú tómur og bíður nýs hlutverks, en á laugardag eru 100 ár frá byggingu hans. Enn hefur ekki verið ákveðið hvernig Vífilsstaðaspítali verður nýttur í framtíðinni, en hann er í umsjá Landspítalans. Sjónvarpsmyndin ,,Hvíti dauðinn" eftir Einar Heimsson frá árinu 1994 verður sýnd í Sjónvarpinu síðar í þessum mánuði en hún fjallar um berklaveikina.
Þeir Ögmundur Jónasson og Guðbjartur Hannesson eru nýir ráðherrar eftir miklar hrókeringar í stjórnarráðinu. Sigmar ræddi við þá Ögmund og Guðbjart.
Þjóðleikhúsið fagnar 60 ára afmæli sínu á þessu leikári. Þann 5. September gefst forvitnum tækifæri á að skoða húsið og margar þekktar persónur barnaleikhúsbókmenntanna koma saman á stóra sviðinu. Þeirra á meðal eru vonda stjúpan, dvergarnir, úlfurinn, Kasper, Jesper og Jónatan. Margrét Erla og Benedikt Ketilsson litu við í Þjóðleikhúsið og hittu Soffíu frænku og fjarskyldan frænda hennar, Lilla klifurmús.