Í meira en 20 ár hefur Sigrún Pálína Ingvarsdóttir barist fyrir því að verða tekin trúarleg en hún fullyrðir að Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup hafi reynt að nauðga sér árið 1979. Áratug eftir brotið fór hún fyrst til kirkjunnar í leit að réttlæti en kveðst ítrekað hafa mætt fálæti og þöggun. Kirkjuráð baðst svo fyrirgefningar vegna brota Ólafs og ákvað að skipa sannleiksnefnd til að kafa ofan í málið. Óhætt er því að fullyrða að barátta Sigrúnar Pálínu hafi skilað árangri þótt seint sé. Sigrún settist hjá Sigmari.