Kastljós, fimmtudaginn 18. mars 2010

 

Doktor Mike Grocott stýrði 200 manna rannsóknarleiðangri á Everestfjall árið 2007 þar sem áhrif súrefnisskorts á hug og líkama voru rannsökuð. Grocott segir alltof marga fjallgöngugarpa vanmeta hættuna af háfjallaveiki, en markmið hans er þó ekki að koma í veg fyrir að þeir veikist, heldur að þróa aðferðir til að lina þjáningar gjörgæslusjúklinga. BBC gerði þættina „Doctors in the Death Zone" um leiðangur hans á Everest og voru þeir sýndir hér á RÚV fyrir skemmstu.Grocott er staddur hér á landi á vegum Félags íslenskra fjallalækna og Þóra Arnórsdóttir og Sigurður Jakobsson hittu hann.

Atvinnubílstjórar landsins keyra þjóðvegina fram og til baka, allan ársins hring, en hafa ekki endilega tækifæri til að njóta útsýnisins. Þeir ættu að líta inn á sýningu sem opnuð verður á Höfn í Hornafirði sem ber yfirskriftina Innland-Útland. Þóra Arnórsdóttir og Benedikt Ketilsson skutust austur en þar stendur nú yfir Vetrarhátíð í ríki Vatnajökuls og ýmislegt í pípunum á svæðinu sem við fáum að heyra af á næstu dögum. En við byrjuðum á nýstárlegri sýn á Hringinn.

Um 200 manns munu stíga á svið í Háskólabíói, í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því að Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu tónleika. Sérstakir hátíðartónleikar sveitarinnar voru haldnir og var Brynja Þorgeirsdóttir í Háskólabíói við upphaf þeirra.

Rapparinn Diddi Fel úr hljómsveitinni Forgotten Lores gaf nýverið út sólóplötuna "Hesthúsið". Diddi Fel ásamt plötusnúðnum Introbeats flutti okkur sambland af 2 lögum af nýju plötunni, "Sorry með mig" og "Jordan rules".


fimmtudagur 18. mars 2010
« Til baka Deila

ÞÆTTIR