Kastljós, fimmtudaginn 13. október 2011

 

Þeir sem vildu ekki fá réttargeðdeildina að Sogni í sitt heimahérað fyrir 20 árum berjast nú gegn því að hún verði flutt á Klepp. Þetta fullyrðir Sighvatur Björgvinsson sem var heilbrigðisráðherra þegar réttargeðdeildin var stofnuð. Hann segir jafnframt að geðlæknar hafi á þeim tíma ekki viljað sinna geðsjúkum afbrotamönnum og að aðbúnaður þeirra hafi verið skammarlegur áður en starfsemin hófst að Sogni. Sighvatur var gestur Sigmars Guðmundssonar en fyrst rifjuðum við upp þetta hitamál með því að skoða gamlar fréttir.

Í kvöld þarf að metta rúmlega 240.000 fleiri munna en í gærkvöldi. Árið 2060 mun mannkynið að öllum líkindum telja meira en tíu milljarða einstaklinga. Um leið gera sífellt fleiri meiri kröfur til fæðunnar sem þeir neyta. Þetta þýðir einfaldlega að matarframleiðsla þarf að tvöfaldast hið minnsta á næstu áratugum ef ekki á illa að fara, en sem stendur minnkar ræktarland með hverju árinu. Julian Cribb er höfundur bókar um þetta efni sem heitir einfaldlega The Coming Famine - Hungursneyðin yfirvofandi.  Þóra Arnórsdóttir hitti Cribb.

Cribb verður með opinn fyrirlestur í hádeginu mánudaginn 17. október í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni.

Um 200 hljómsveitir koma fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni og margar oftar en einu sinni. Svo eru fjölmargir tónlistarmenn sem spila með fleiri en einni hljómsveit. Kastljós hitti bassaleikarann sem samkvæmt okkar upplýsingum er giggkonungur Iceland Airwaves í ár.


föstudagur 14. okt. 2011
« Til baka Deila

ÞÆTTIR