Hlusta | nýr gluggi »
Á Austurlandi er mikið fannfergi og hafa sumir áhyggjur af áhrifum þess á gróður, nú þegar langt er liðið á maímánuð. Reyndar er þetta vorhret fremur milt. Næturfrost hefur ekki verið mikið og því verða skemmdir á gróðri minni en ella. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Þröst Eysteinsson, sviðsstjóra Þjóðskóga hjá Skógrækt ríkisins.