GETTU BETUR 2010 - 2011
Eins og lóan kemur á vorin ár hvert að kveða burt snjóinn byrjar Gettu betur á Rás 2 ævinlega í janúarmánuði og heldur síðan áfram í Sjónvarpinu. Þessi vinsæli spurningaþáttur er orðinn meðal lífseigustu þátta Ríkisútvarpsins og verður nú á dagskrá í 25. sinn.
Lið frá 30 skólum munu spreyta sig á spurningum í þetta sinn. Keppnin er með útsláttarsniði og er keppt í tveimur umferðum á Rás 2. Sú keppni hefst 31. janúar og lýkur 11. febrúar. Átta sigurlið úr útvarpskeppninni keppa síðan til úrslita í Sjónvarpinu. Fyrsti sjónvarpsþátturinn verður 19. febrúar og úrslitaþátturinn 2. apríl.
Nýr spyrjandi í Gettu betur verður Edda Hermannsdóttur og nýr stigavörður, Marteinn Sindri Jónsson. Örn Úlfar Sævarsson verður spurningahöfundur og dómari eins og á síðasta ári.
Edda nemur hagfræði við Háskóla Íslands. Hún tók virkan þátt í félaglífinu í MA á menntaskólaárunum og var inspector scholae síðasta árið. Hún er líka virk í félagslífi stúdenta núna og situr í stúdentaráði HÍ.
Marteinn Sindri stundar nám í heimspeki við HÍ. Hann tók líka virkan þátt í félagslífinu á menntaskólaárunum. Hann sat m.a. í stýrihópi Gettu betur sem fulltrúi MH. Marteinn hefur verið dagskrárgerðarmaður á Rás 1 að undanförnu. Hann stjórnar nú þættinum Tveir plús tveir eru fimm sem er á Rás 1 og stefnir þar saman fólki á ólíkum aldri eða af ólíkum toga til þess að ræða efni sem ber ekki á góma í hefðbundinni umræðu frá degi til dags, eins og segir í dagskrárkynningu.
Örn Úlfar Sævarsson er íslenskufræðingur og starfar sem hugmynda- og textasmiður hjá auglýsingastofunni Fíton. Hann hefur starfað sem þulur hjá Ríkisútvarpinu. Umsjónarmaður Gettu betur er Andrés Indriðason. Hann hefur starfað hjá Sjónvarpinu frá árinu 1965. Hann varð umsjónarmaður og upptökustjóri Gettu betur 1991 og mótaði þáttinn þá í þá mynd sem hann hefur verið síðan, ásamt Stefáni Jóni Hafstein.
Í stýrihópi Gettu betur sitja hverju sinni fulltrúar skóla sem voru í undanúrslitum árið áður. Í þetta sinn eru það Þengill Björnsson, Menntaskólanum í Reykjavík, Anton Guðjónsson, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Starkaður Hróbjartsson, Verzlunarskóla Íslands og Vilhjálmur Pálmi Snædal, Menntaskólanum á Egilsstöðum.


