Lið MR og Kvennó keppa til úrslita

 

Það verða lið Menntaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík sem keppa til úrslita í Gettu betur að þessu sinni.  MR-ingar höfðu betur í undanúrslitunum gegn liði MH og lið Kennaskólans sigraði lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Öll þessi lið hafa mætt gríðarlega sterk til leiks í Gettu betur þetta árið.

Úrslitakeppnin verður í stórum sal eins og venja hefur verið.  Að þessu sinni í Háskólabíói og hefst klukkan 20:10 á laugardagskvöld.

Þetta er í fyrsta sinn sem lið Kvennaskólans í Reykjavíkur keppir í úrslitum Gettu betur.  Keppendur eru Bjarki Freyr Magnússon, Bjarni Lúðvíksson og Laufey Haraldsdóttir.

MR-ingar hafa oftar en aðrir hampað Hljóðnemanum eftir úrslitarimmur en lið þeirra skipa nú Stefán Kristinsson, Jón Áskell Þorbjarnarson og Ólafur Hafstein Pétursson.    


miðvikudagur 30. mars 2011
« Til baka Deila