Tvær fjörlegar viðureignir eru að baki í átta liða úrslitum Gettu betur. Í fyrsta þættinum mættust lið Menntaskólans á Akureyri og Kvennaskólans í Reykjavík. Þetta var jöfn og spennandi viðureign tveggja góðra liða en keppendur Kvennaskólans höfðu betur og sigruðu með 27 stigum gegn 24. Lið Kvennaskólans stóð sig afar við í keppninni á Rás 2 og hlaut flest stig allra í báðum umferðum. Liðið skipa Bjarki Freyr Magnússon, Bjarni Lúðvíksson og Laufey Haraldsdóttir.
Í annarri viðureigninni 26. febrúar mættust lið Menntaskólans við Hamrarhlíð og Verzlunarskóla Íslands en þessi skólar áttust líka við í sjónvarpskeppninni í fyrra. Þá hafði lið Verzló betur. Nú snerist dæmið við. Lið MH sigraði með nokkrum yfirburðum, 28 stigum gegn 19. Keppendur MH eru Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir og Snæbjörn Gauti Snæbjörnsson.
Þriðja viðureignin verður laugardaginn 5. mars en þá eigast við lið Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Reykjavík. 12. mars mætast svo lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Borgarholtsskóla.
Undanúrslit verða 19. og 26. mars og úrslitaþátturinn 2. apríl en sú keppni verður í beinni útsendingu úr Háskólabíói.