Lið Kennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans í Reykjavík mættust í úrslitaviðureign Gettu betur fyrir fullu húsi áhorfenda í Háskólabíói laugardagskvöld 2. apríl. Lið Kvennaskólans tók forystuna strax eftir hraða- og vísbendingaspurningar og hélt henni allt til loka þó að mjótt væri á munum um tíma. Eitt stig skildi liðin að þegar upp var staðið.
Þetta var sögulegur sigur því að nú var stúlka í fyrsta sinn í keppnisliði í 25 ára sögu keppninnar. Það var Laufey Haraldsdóttir en auk hennar voru Bjarki Freyr Magnússon og Bjarni Lúðvíksson í sigurliðinu. Þá var þetta í fyrsta sinn sem lið Kennaskólans keppir til úrslita í Gettu betur.
Alls tóku keppnislið frá 30 skólum þátt í keppninni að þessu sinni. Keppnin er með útsláttarsniði og er fyrst keppt í tveimur umferðum á Rás 2 og síðan í Sjónvarpinu, einu sinni, tvisvar eða þrisvar eftir árangri. Þegar lið Kvennó hafði lokið keppni og Laufey, Bjarki og Bjarni hömpuðu Hljóðnemanum að lokinni einstaklega líflegri og skemmtilegri viðureign höfðu þau haft betur í fimm viðureignum.
Að vanda var veitt viðurkenning fyrir tónlistarflutning í átta liða úrslitum keppninnar. Sú vegsemd féll MH-ingum í skaut að þessu sinni en þeir tefldu fram hljómsveitinni Gleðisveit lýðveldisins sem flutti lagið Fröken Reykjavík eftir Jón Múla Árnason og Jónas Árnason með miklum glæsibrag.