Lagið

Lagið Je Ne Sais Quoi eftir Örlyg Smára og Heru Björk verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpstöðva, Eurovision 2010, sem fer fram í Noregi í maí næstkomandi. Ísland tekur þátt í fyrri undankeppninni þriðjudaginn 25. maí, en lokakeppnin fer fram laugardaginn 29. maí. Meginhluti textans verður sunginn á ensku en hluti af viðlaginu er á frönsku.
Hera Björk syngur lagið og með henni á sviði verða bakraddasöngvararnir Kristjana Stefánsdóttir, Erna Ólafsdóttir, Heiða Ólafsdóttir, Kristján Gíslason og Pétur Örn Guðmundsson.
Útgefandi lagsins er nýtt fyrirtæki sem heitir Hands Up Music. Hópurinn fer út til Noregs dagana 15. og 16. maí en fyrsta æfingin verður í Telenor Arena í Bærum mánudaginn 17. mars. Telenor Arena er knattspyrnuhöll Stabæk liðsins, sem er heimaliðið í Bærum sem áhugafólk um knattspyrnu kannast við. Höllin rúmar 18.000 manns í sæti hvert keppniskvöld.

 

Hera Björk, sönkona og höfundur  

Hera Björk kjóllHera Björk Þórhallsdóttir fæddist í Reykjavík 29. mars 1972. Tónlistin er ættarfylgja því móðir hennar Hjördís Geirsdóttir er kunn söngkona og móðurbróðir hennar Gissur Geirsson stjórnaði eigin hljómsveit sem starfaði mestmegnis á Suðulandi. Hera byrjaði snemma að koma fram og söng ásamt fleiri krökkum inn á barnaplötu á meðan hún var enn í grunnskóla. Hera vann fyrstu söngkeppni sína 1988 þegar hún var sextán ára gömul og var í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 1991. Hún fékk hlutverk í nokkrum söngleikjum eftir þetta t.d. í Rocky Horror, Evitu, Litlu hryllingsbúðinni og Kysstu mig Kara. Hún tók þátt í sýningum Sirkus Skara Skrípó 1996-1997 og var í hljómsveitunum Orgill, Sweetý  og 17 vélar áður en hún gaf út plötuna Ilmur af jólum sem kom út árið 2000. Önnur platan hennar sem nefndist einfaldlega Hera Björk kom út 2006. Þar söng hún m.a. norska Eurovision lagið Alvedansen á íslensku. Þessa stundina vinnur Hera ásamt Örlygi Smára að þriðju breiðskífu sinni.    

Hera varð þekkt á landsvísu þegar hún tók við af Evu Maríu Jónsdóttur sem annars stjórnenda sjónvarpsþáttarins Stutt í spunann veturinn 1999 til 2000. Þar starfaði hún með leikaranum Hjálmari Hjálmarssyni, en þátturinn naut mikillar hylli meðal ungs fólks. Eftir þetta hefur Hera komið margsinnis fram í útvarps- og sjónvarpsþáttum, tekið þátt í flytja íslenska og erlenda tónlist á sviði og m.a. verið þátttakandi í  Frostrósatónleikunum fyrir jólin, svo fátt eitt sé tilgreint.  

Hera hóf nám í söng við Söngskólann í Reykjavík 1989 og naut m.a. kennslu hjá Rut Magnússon, Bergþóri Pálssyni, Elínu Ósk Óskarsdóttur og Ernu Guðmundsdóttur. Árið 2004 var Hera í hópi þeirra sem tóku þátt í gerð Medúllu, hinnar metnaðarfullu plötu Bjarkar sem byggði eingöngu á mannsröddinni. Þetta haust flutti um stundarsakir til Kaupmannahafnar til að nema söngtækni við Complete Vocal Institute hjá Cathrine Sadolin sem hefur þróað aðferðir sem hjálpa til við að lagfæra raddbeytingu og tæknilega stjórn á söngröddinni. Þessi aðferð er einnig kjörin til að hjálpa söngfólki við að lagfæra vandamál sem tengjast ofreynslu á raddböndin sem þjaka marga.
Hera útskrifaðist frá CVI skólanum með kennsluréttindi og um árabil fengist við námskeiðahald og kennslu víða um Evrópu. Hera m.a. hefur fengist við að aðstoða og leiðbeina söngfólki og leikurum sem starfa í leikhúsi, sjónvarpi og fást mikið við tónleikahald.  

Hera söng lagið lagið Mig dreymdi eftir Óskar Guðnason og Ingólf Steinsson í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007. Árið eftir tók hún þátt í Grand Prix 2008, dönsku undankeppninni fyrir Eurovision, og hafnaði í öðru sæti. Lagið sem hún flutti heitir Someday og er það í miklum metum hjá fjölda aðdáenda keppninnar. Hera tók virkan þátt í flutningi framlaga Íslands í Eurovision í Serbíu 2008 og í Moskvu 2009, sem leiðbeinandi og bakraddasöngkona. Nú er komið að Heru að flytja framlag Íslands í Eurovision þegar hún stígur á svið nr. 17, síðust keppendanna sem taka þátt í fyrri undanúrslitakeppninni sem haldin verður 25. maí Noregi.

 

Örlygur Smári, höfundur og upptökustjóri  

Örlygur SmáriÖrlygur Smári fæddist 30. júní 1970 í Reykjavík og var skýrður í höfuðið á afa sínum Örlygi Sigurðssyni myndlistarmanni. Hann var ekki hár í loftinu þegar tónlistin heillaði og fljótlega kom í ljós hvert hugurinn stefndi. Stóra tækifærið kom árið 2000 þegar Örlygur og Sigurður Örn Jónsson komu tveimur lögum í úrslit í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Annað þeirra var Tell Me sem sigraði keppnina öllum að óvörum. Örlygur samdi lagið en textann áttu þeir Sigurður í sameiningu. Örlygur og Sigurður fylgdu þessum sigri eftir ásamt Einari Ágústi og Telmu Ágústsdóttur sem fluttu lagið í Eurovision keppnninni í  Svíþjóð vorið 2000. Þar gekk þeim ágætlega því lagið hafnaði í 12. sæti en 24 lög kepptu til úrslita.     

Nokkru seinna fór Örlygur til Svíþjóðar og starfaði þar við tónlist næstu árin. Þetta var dýrmætur tími og lærði hann sittlítið af hverju um tónlistarbransann, lagasmíðar,  upptökuvinnu og rekstur hljóðvers. Hann flutti aftur heim til Reykjavíkur árið 2005 og setti á laggirnar eigið hljóðver. Hann starfaði með fjölda þekktra tónlistarmanna, þar á meðal Páli Óskari Hjálmtýssyni. Saman unnu þeir að plötunni Allt fyrir ástina sem varð metsöluplata ársins 2007. Örlygur hefur samið nokkur vinsæl lög fyrir aðra tónlistarmenn og stjórnað upptökum á plötum sem hafa gert það býsna gott á vinsældarlistunum.  

Örlygur sendi inn lagið This Is My Life þegar auglýst var eftir lögum til að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins haustið 2007. Lagið komst í gegnum nálarauga valnefndarinnar og keppti við fjölda laga eftir þekkta höfunda. Regína Ósk og Friðrik Ómar fluttu lagið sem hafnaði í efsta sæti eftir mjög spennandi keppni sem stóð meira og minna yfir allan veturinn.  

Eurobandið flutti lagið í annarri undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fór í Belgrad í Serbíu 22. maí 2008. Þar komst This Is My Life  í 8. sæti og ávann sér keppnisrétt í aðalkeppninni. Íslendingar höfðu ekki náð slíkum árangri frá því að keppninni var skipt í tvær undankeppnir og aðalkeppni. Þetta var því afburðagóður árangur og hafnaði lagið í 14. sæti af 25 í lokakeppninni.   

Örlygur og og Sigurður Örn Jónsson tóku þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009 þegar kvennasveitin Elektra flutti lag þeirra Got No Love, en þeim tókst ekki að sigra í það skipti. Örlygur og Hera bundust fastmælum um að gera betur í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2010. Þau sömdu saman lagið Je Ne Sais Quoi sem skilaði tilætluðum árangri. Þau verða þau fulltrúar Íslands í Noregi þegar Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í Bærum, nágrannabæ Oslóar í maí 2010.

RÚV Efstaleiti 1, 150 Reykjavík, Ísland - Sími:515 3000 - webmaster@ruv.is - © RÚV 2008