RauðkálHráefni
2 bollar sykur
1 meðalstór haus rauðkál
3 bollar edik
1/2 bolli balsamicedik
Aðferð
Dreifið sykri í botninn á rúmgóðum potti, setjið hitann á og bíðið eftir því að sykurinn bráðnar. Þegar sykurinn er bráðnaður og orðinn eins og að sósu þá blandið þið smátt skornu rauðkáli saman við, hrærið vel og varlega. Hellið ediki og balsamicediki saman við, látið suðuna koma upp en lækkið þá hitann og látið malla í um hálfa klukkustund. Hrærið reglulega í. Ef þið ætlið að hita rauðkálið upp síðar þá þarf að að ekki að vera svo lengi þegar það er búið til.