Fylltur Kalkúnn

 

Fylltur KalkúnnHráefni

1 kalkúnn (stærðin fer eftir því hve margir eru í mat, sá sem við eldum í þættinum er 3 til 4 kíló)
salt
pipar
kjúklingakrydd
smjör
2 til 3 stilkar sellerí
2 laukar
1 askja sveppir
4 til 6 brauðsneiðar
2 til 3 bollar soðið vatn
kryddjurtarblanda

Aðferð

Afþýðið kalkúninn samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og fylgið þeim vel. Þerrið hann vel. Munið að hafa tandurhreinar hendur þegar þið matreiðið kalkúninn (á reyndar alltaf við um alla matargerð). Útbúið fyllinguna: Bræði smjörið (100 g) í potti, steikið smátt skorið sellerí, lauk og sveppi í smjörinu. Rífið brauðið útí og blandið vel, hellið soðna vatninu yfir og kryddið vel með kryddjurtarblöndu ( 2 til 3 msk). Setjið fyllinguna í kalkúninn og komið honum fyrir í ofnskúffunni. Kryddið kalkúninn með salti pipar og kjúklingakryddi. Mér finnst mjög gott að pensla fuglinn með bræddu smjöri á hálftíma fresti. Steikið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum (fer eftir stærð fuglsins).
Hálftíma áður en kalkúnninn er tilbúinn er rosalega gott að skera sætar kartöflur í bita/sneiðar og steikja þær í ofnskúffunni, velta af og til. Þær verða sérlega safaríkar!

Ef það er afgangur af fyllingunni þá má setja hana líka í ofnskúffuna. En hún passar líka rosalega vel sem viðbót við kartöflusalat. Skerið soðnar kartöflur í báta og blandið afgangi af fyllingu saman við. Hrærið saman majónes, sýrðan rjóma, sinnep og hunang í létta sósu og blandð saman við kartöflurnar. Passar líka mjög vel með kalkún.


föstudagur 18. des. 2009
« Til baka Deila