Fylltar pönnukökurHráefni
1 pakki kjúklingalundir
þykk bbq sósa
olía
1 rauðlaukur
1 bolli grísk jógúrt
1 bolli tómatmauk (í krukku)
1 msk majónes
1 tsk hunang
tortillur eða aðrar pönnukökur
Aðferð
Blandið saman olíu og bbq sósu og marinerið kjúklingalundi í blöndunni. Steikið þær síðan á pönnu þar til þær eru steiktar í gegn. Takið af pönnunni og skerið smátt. Blandið saman smátt skornum rauðlauk, grískri jógúrt, tómatmauki, majónesi og hunangi, hrærið vel. Smyrjið sósunni á pönnukökuna, dreifið kjúklingi yfir (og setjið jafnvel smá meiri sósu) og lokið svo með annarri pönnuköku. Þrýstið vel saman. Skera má hverja pönnukökusamloku í 4 eða 8 sneiðar. Mjög gott er að dýfa sneiðunum í ostasósu sem líka fæst í krukkum og hita hana fyrst aðeins.